Maraþon!
Í dag, þriðjudaginn 20. júní, hljóp ég maraþon. Maraþon á rætur sínar að rekja til Forn Grikklands en þar sem ég fylgdist ekki betur með í sögu veit ég ekki nákvæmlega hvað gerðist. Ég veit þó að það var sendiboði sem hljóp þessa vegalengd, 42,195 km., kom skilaboðunum áleiðis og dó (Það má nefna það að ég dó ekki).
Maraþonið var haldið á vegum skólans, allir nemendur hlupu, við vorum 5 sem hlupum maraþon, nokkrir hlupu hálfmaraþon og restin hljóp tíu kílómetra. Við hlupum hring í kringum skólann sem er nákvæmlega 1000 metrar. Ef þið sækjið reiknivél þá getið þið reiknað út að ég hljóp 42 hringi í kringum skólann sem er álíka spennandi og að keyra 42 hringi í stóra hringtorginu fyrir utan Háskólabíó (líkurnar á að æla eru þó stærri í maraþoninu). Allaveganna, ég náði markmiðinu mínu, sem var að klára hlaupið, og gerði það á 4 tímum, 20 mínútum og 37 sekúndum.
Það má til gamans geta að við söfnuðum peningum með hlaupinu. Fimm fyrirtæki hérna í bænum, ásamt öllum kennurunum í skólanum, gáfu alls 60.000 krónum sem fara svo "óskert" til Krabbameinsfélagsins.

Næsta markmiðið mitt er að læra að labba aftur og hugsanlega að horfa á England- Svíþjóð, Svíarnir þurfa á sigri að halda ef þeir ætla að forðast leik við ofureflið Þýskland! Atli og Snjólaug, munið að við erum búin að leggja undir!
Lifið heil,
Einar
ps. Ísland, 12 dagar



